Þessi kjúklingur vekur lukku hvar sem hann kemur. Það sem gerir þessa uppskrift svo skemmtilega er parmesan raspið sem gerir hann stökkan og skemmtilegan og Dijon sinnepið.
Spínatbaka tilvalið bæði í hádeginu og í kvöldmatinn
Það er ótrúlega einfalt og gott að útbúa bökur í matinn hvort sem maður vill í kvöldmat eða hádegismat. Maður getur auðvitað búið til bökuskelina sjálfur en það er líka hægt að kaupa tilbúið deig, eins og paj deig frá Maizena sem maður þarf bara að hnoða saman eða smjördeig frá Pillsbury sem er frosið og þá þarf auðvitað að afþýða það áður, sem tekur nú bara smá stund.